Raunfærnimat
Í haust fer fram raunfærnimat í Borgarholtsskóla. Raunfærnimat veitir staðfestingu á færni einstaklinga óháð því hvernig hennar hefur verið aflað. Niðurstöður raunfærnimats eru nýttar til að stytta nám eða sýna fram á og auka færni á vinnumarkaði.
Matið er ætlað þeim einstaklingum sem hafa náð 23 ára aldri og hafa þriggja ára starfsreynslu í viðkomandi fagi.
Boðið er upp á mat á móti námskrám allra verk- og starfsnámsbrauta skólans:
- Félagsliðabraut
- Leikskólaliðabraut
- Námsbraut fyrir stuðningsfulltrúa í skólum
- Námsbraut í bílamálun
- Námsbraut í bifreiðasmíði
- Námsbraut í bifvélavirkjun
- Blikksmíðabraut
- Rennismíðabraut
- Stálsmíðabraut
- Pípulagningabraut
- Vélavirkjabraut
Sandra Hlín Guðmundisdóttir, náms- og starfsráðgjafi, veitir allar frekari upplýsingar. Best er að skrifa henni tölvupóst á sandra.gudmundsdottir@borgo.is eða hringja í síma 535 1700.
Næsta raunfærnimat fer fram haustið 2024. Smelltu hér til að sækja um.
Nánari upplýsingar um raunfærnimat er að finna á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Áætlaðar tímasetningar vegna raunfærnimats haustið 2024
- Ágúst/september: Úrvinnsla umsókna, skimunarsamtöl
- 14. – 17. október: Sjálfsmat
- 15. – 17. nóvember: Raunfærnimat
- 25. – 29. nóvember: Niðurstöður sendar þátttakendum
Uppfært: 14/06/2024