Rennismíði
Markmið náms í rennismíði er að gera nemendum kleift að takast á við þau viðfangsefni sem rennismiðir inna af hendi, þ.e. smíði íhluta af öllu tagi úr málmum og plastefnum, bæði fjölda- og raðframleiðslu og smíði einstakra íhluta til viðhalds og viðgerða. Náminu lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa við rennismíði og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.
Nemendur geta lokið þeim hluta námsins sem kenndur er í skóla (160 einingum) á þremur námsárum. Að þeim tíma loknum tekur við starfþjálfun á vinnumarkaði sem metin er til 45 eininga. Loks er gert ráð fyrir að nemendur taki sveinspróf í rennismíði.
Nemendur geta útskrifast að loknu starfsnámi eða að loknu starfsnámi og stúdentsprófi. Þeir áfangar sem bætast við upp í stúdentsprófið eru neðst á síðunni undir kaflanum Viðbótarnám til stúdentsprófs.
Kjarni
*Nemendur með A, B eða hærra en 7,0 í grunnskólaeinkunn þurfa ekki að taka þennan áfanga.
**Nemendur með A, B eða hærra en 7.0 í grunnskólaeinkunn í stærðfræði eða hafa lokið STÆ1A05 þurfa ekki að taka þennan áfanga.
***Nemendur þurfa að taka tvær einingar í íþróttum til viðbótar við þær sem eru í kjarna. Nemendur geta valið á milli eftirfarandi áfanga: RÆK1A01 – ræktin, JÓG1A01 – jóga, KÖR1A01 – körfubolti, FÓT1A01 – fótbolti og ÚTI1A01 – útivist. Velja má hvern þessara áfanga oftar en einu sinni og velja má fleiri en einn áfanga á önn.
Sérgreinar
Bundið áfangaval
5 einingar af 15
Fag | Þrep 1 | Þrep 2 | Þrep 3 | Þrep 4 |
---|---|---|---|---|
Aflvélavirkjun | AVV2A05 | |||
Hlífðargassuða | HSU2A05 | |||
Tölvuteikning, autocad | TTÖ2A05 |
Viðbótarnám til stúdentsprófs
Nemendur sem ætla að útskrifast með viðbótarnám til stúdentsprófs þurfa að taka eftirfarandi:
Kjarni
Nemendur þurfa að taka alla áfangana í kjarna.
Bundið áfangaval
Nemendur velja 5 einingar í ensku og/eða stærðfræði.
Nemendur velja annað hvort félagsfræði, náttúrufræði eða sögu sem viðbót (5 einingar).
Frjálst val
Nemendur nýta frjálst val til þess að fylla upp í þær 200 einingar sem þarf til stúdentsprófs. Athugið að einingar á 1. þrepi mega að hámarki vera 66, einingar á 2. þrepi mega að hámarki vera 100 og einingar á 3. þrepi þurfa að vera að lágmarki 34.
Uppfært: 05/02/2024