07/05/2024 | Ritstjórn
Leikfélagið Apollo setur upp Andlát við jarðarför
![Andlát við jarðarför](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/Auglysing-Andlat-vid-jardarfor-Apollo-vor-24.jpeg)
Andlát við jarðarför
Apollo, leikfélag Borgarholtsskóla, undirbýr nú sýningar á leikritinu Andlát við jarðarför. Leikritið fjallar um jarðarför sem breytist í algjöran hrærigraut af fjölskylduleyndarmálum en í grautinn blandast svo ofskynjunarlyf, óþolandi gömul frænka, hrokafullur bróðir og dularfullur gestur úr fortíðinni. Sýningin er sett upp í Hlöðunni og verða þrjár sýningar föstudaginn 10. maí, laugardaginn 11. maí og sunnudaginn 12. maí. Leikstjóri er Höskuldur Þór Jónsson.
Nemendur hafa lagt mikla vinnu í að undirbúa bráðskemmtilega sýningu og eru öll hvött til þess að sjá sýningu leikfélagsins. Hægt er að nálgast miða á Midix.is.
Myndagallerí
![Myndir frá æfingatímabilinu](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/ANDLAT-5-.jpeg)
Myndir frá æfingatímabilinu
![Myndir frá æfingatímabilinu](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/ANDLAT-6.jpeg)
Myndir frá æfingatímabilinu
![Myndir frá æfingatímabilinu](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/Andlat-2.jpeg)
Myndir frá æfingatímabilinu
![Myndir frá æfingatímabilinu](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/Andlat-1.jpeg)
Myndir frá æfingatímabilinu