09/02/2024 | Ritstjórn
Glæsiballið
Glæsilegir nemendur á Glæsiballi
Fimmtudagskvöldið 8. febrúar var haldið Glæsiball í Borgarholtsskóla en svo nefnist árshátíð nemenda skólans.
Glæsiballið fór að venju fram í matsal skólans. Starfsfólk þjónaði nemendum til borðs en á boðstólnum var kalkúnn með öllu tilheyrandi og súkkulaðimús í eftirrétt. Veislustjórar voru Aron Mola og Arnar Þór Ólafsson en þeir héldu uppi góðu stuði. Einnig kom Vilhelm Anton Jónsson, betur þekktur sem Villi Naglbítur, fram og tók nokkur lög við góðar undirtektir. Sýnd voru myndbönd frá BARA nefndinni og grínmyndband frá starfsfólki auk þess sem haldin var hæfileikakeppnin Borgó got talent. Einn og hálfur dj þeytti svo skífum í lok kvölds.
Nemendur skemmtu sér vel og voru í alla staði til fyrirmyndar eins og við var að búast.
Myndagallerí
Veislustjórar kvöldsins Aron Már og Arnar Þór
Símon sigraði í Borgó got talent
Glerbúrskórinn
Prúðbúnir nemendur við borðhald
Sýnd voru myndbönd
Villi Naglbítur spilar
Borðhald
Undirbúningur í eldhúsinu
Ronja tók lagið
Nökkvi Jarl kennari í leiknum Veistu hver ég er
Prúðbúnar stúlkur
Salurinn var fallega skreyttur
Nemendur í góðu stuði
James Bond þema var á Glæsiballinu
Nemendur í góðu stuði
Nemendur í góðu stuði
Nemendur í góðu stuði
Nemendur í góðu stuði
Nemendur í góðu stuði